Starfssvið Forum Lögmanna

Forum Lögmenn

Starfssvið

Forum Lögmenn veita alhliða lögmannsþjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar.

Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af málflutningi og hafa unnið að flóknum málum á fjölmörgum réttarsviðum. Hér má finna yfirlit yfir starfssvið stofunnar.

  • Síðari ár hafa viðskiptavinir lögmannsstofunnar í auknum mæli nýtt sér að leita lögfræðilegrar umsagnar um álitaefni, hvort sem um er að ræða réttarstöðu sína, túlkun á samningum, lögum o.fl.

    Lesa meira
  • Við aðstoðum viðskiptamenn okkar við gerð erfðaskráa og veitum ráðgjöf í tengslum við slíka gerninga. Jafnframt hafa Forum Lögmenn mikla reynslu af skiptum á dánarbúum.

    Lesa meira
  • Hjá Forum Lögmönnum starfa sérfræðingar í Evrópurétti sem m.a. hafa starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA, flutt dómsmál bæði fyrir innlendum dómstólum þar sem reynir sérstaklega á þetta réttarsvið sem og flutt fjölda mála fyrir EFTA-dómstólnum. Sum þessara mála hafa ekki aðeins haft þýðingu hérlendis heldur einnig á hinu Evrópska efnahagssvæði. Lögmenn stofunnar eru þannig sérstaklega vel í stakk búnir að liðsinna þeim sem þurfa ráðgjöf á þessu sviði.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn geta veitt viðskiptavinum sínum alla almenna lögfræðilega ráðgjöf er varðar fasteignir, þ.m.t. vegna ágreinings sem kann að koma upp við fasteignakaup, t.d. túlkun samninga, galla, innheimtu kaupverðs o.fl.

    Lesa meira
  • Lögmenn Forum Lögmanna búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sviði gjaldþrotaréttar og reynslu við skipti á þrotabúum. Hafa lögmenn stofunnar annast skiptastjórn í fjölda þrotabúa, hvort sem er einstaklinga eða smærri og stærri fyrirtækja. Stofan veitir einnig ráðgjöf og aðstoð vegna greiðslustöðvunar, nauðasamninga o.fl.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn hafa sérhæft sig í höfundarrétti og annast til fjölda ára bæði ráðgjöf og hagsmunagæslu á sviði höfundarréttar, þ.m.t. fyrir höfundarréttarsamtök. Þá veitir lögmannsstofan aðstoð við samningagerð, m.a. við gerð höfundar- og útgáfusamninga um hinar ýmsu tegundir hugverka.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn hafa yfirgripsmikla reynslu af alhliða málflutningi. Lögmenn stofunnar hafa flutt samtals á annað þúsund mál fyrir héraðsdómum landsins og tæplega þrjú hundruð mál fyrir Hæstarétti Íslands. Þá hefur lögmannsstofan auk þess annast flutning fjölda mála fyrir EFTA-dómstólnum sem og rekstur mála fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

    Lesa meira
  • Sakamál

    Forum Lögmenn hafa áratuga reynslu af verjendastörfum í sakamálum sem og réttargæslu fyrir brotaþola í slíkum málum.

  • Forum Lögmenn hafa sérhæft sig á sviði samkeppnisréttar, þ.m.t. gætt hagsmuna fjölda fyrirtækja vegna málsmeðferðar fyrir samkeppnisyfirvöldum og dómstólum. Einnig veita Forum Lögmenn alla almenna lögfræðiaðstoð og ráðgjöf til fyrirtækja vegna samruna og/eða yfirtöku.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn annast ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja við gerð hvers konar lagalegra samninga. Jafnframt annast þeir hagsmunagæslu og málarekstur fyrir dómstólum vegna ágreinings sem leiðir af túlkun samninga og/eða efndum á samningum.

    Lesa meira
  • Lögmannsstofan annast hagsmunagæslu og ráðgjöf vegna skilnaðarmála, forsjármála o.s.frv. Auk þess veita lögmenn stofunnar aðstoð og ráðgjöf við gerð kaupmála, gerð samninga um fjárskipti, forsjá barna o.fl.

    Lesa meira
  • Lögmenn stofunnar hafa áratuga reynslu af meðferð og uppgjöri slysamála fyrir einstaklinga, auk þess að hafa annast kennslu á þessu sviði bæði við lagadeild Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur. Í þeim tilgangi að auka sérhæfingu var tekin sú ákvörðun á árinu 2006 að færa innheimtu bóta vegna líkamstjóna frá Forum Lögmönnum yfir í sérstakt félag til að auka til muna skilvirkni og þjónustu við þá sem til lögmannsstofunnar leita. Ber félagið nafnið TORT – Innheimta slysabóta og er rekið sem systurfélag Forum Lögmanna.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn hafa mikla reynslu á sviði skipulags- og byggingarmála. Lögmenn stofunnar geta veitt hvers konar ráðgjöf er þennan málaflokk varðar, hvort sem er vegna ágreinings við skipulags- og byggingaryfirvöld eða einstaklinga, t.d. vegna skipulagstillagna, byggingarleyfa, ágreinings fyrir úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála eða málareksturs fyrir dómstólum.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn annast gerð verksamninga og ráðgjöf til verktaka og verkkaupa vegna verksamninga. Lögmannsstofan hefur í gegnum árin annast hagsmunagæslu í fjölda ágreiningsmála á þessu sviði, þ.m.t. fyrir kærunefnd útboðsmála og fyrir dómstólum.

    Lesa meira
  • Forum Lögmenn hafa mikla reynslu af vinnuréttarmálum, hvort sem er hagsmunagæslu fyrir einstaklinga eða fyrirtæki. Þá hafa lögmenn stofunnar rekið fjölda dómsmála fyrir viðskiptavini sína bæði fyrir Félagsdómi og almennum dómstólum, þ.m.t. til innheimtu launa, vegna uppsagna og vegna ágreinings um túlkun kjarasamninga o.fl.

    Lesa meira
  • Góð heilsa er dýrmæt og því er það mikið áfall að slasast. Slys geta leitt til mikilla breytinga í lífi fólks, líkamlegra sem og andlegra. Eftir slys getur tjónþoli orðið fyrir tímabundinni eða varanlegri tekjuskerðingu, jafnvel til frambúðar. Ef þú hefur lent í slysi skiptir miklu máli að hagsmuna þinna sé gætt af sérfræðingum á sviði skaðabótarréttar sem sjá til þess að þú fáir allt tjón þitt bætt.

    Lesa meira